Fotbolti.net
24.05.19 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Hár verðmiði á Jack Grealish ef Aston Villa tapar

Jack Grealish.

Jack Grealish.

Canon

Mynd: Getty Images

Dean Smith, stjóri Aston Villa, segir að Jack Grealish verði ekki seldur ódýrt ef Villa tapar gegn Derby í úrslitaleik Championship umspilsins á mánudag.

Tottenham hefur lengi sýnt áhuga á Grealish og leikmaðurinn er sagður stefna á að spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Ef Villa, uppeldisfélag hans, vinnur Derby þá mun hann klárlega leika með liðinu á næsta tímabili.
„Hann skrifaði undir nýjan samning í byrjun tímabilsins. Hann elskar Aston Villa og þráir ekkert heitar en að komast upp með Aston Villa. Ef við komumst ekki upp þá mun hann kosta heilmikið ef einhver vill kaupa hann," segir Smith.

Grealish er 23 ára sóknarmiðjumaður sem býr yfir miklum hæfileikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.