Fotbolti.net
30.06.26 - 11:45
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkastur í 12. umferð - Ekki góðir en unnu samt stórsigur

Helgi Guðjónsson er leikmaður 12. umferðar.

Helgi Guðjónsson er leikmaður 12. umferðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við komum ekki oft hingað og vinnum stórt. Það er mjög sterkt. En mér fannst við ekki góðir í dag og ólíkir sjálfum okkur," sagði Helgi Guðjónsson, leikmaður Víkings, eftir 4-1 útisigur gegn Breiðabliki í 12. umferð Bestu deildarinnar.

Helgi er Sterkasti leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar en hann skoraði tvö mörk úr vinstri bakverðinum. Fyrra mark hans var með glæsilegri afgreiðslu.

Helgi er besti vinstri bakvörður deildarinnar og var að sjálfsögðu valinn í úrvalslið umferða 1-11 sem opinberað var á dögunum.
Úrvalslið umferða 1-11 í Lengjudeildinni
TENGT EFNI

Úrvalslið umferða 1-11 í Lengjudeildinni

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
„Það er fínt að skora, alltaf gaman. Maður var þokkalegur í kvöld, en ég hefði vissulega getað gert margt betur líka. Alltaf gott að skora og hjálpa liðinu þannig.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan og einnig má sjá svipmyndir úr leiknum.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og kom Víkingum í 3-0, Helgi skoraði skömmu síðar sitt annað mark og hefði hann tekið vítaspyrnuna væri hann með þrjú. Þeir hafa báðir verið að deila ábyrgðinni á punktinum.

„Gylfi fékk að taka þetta í dag,“ aðspurður um hvers vegna segir Helgi svarið einfalt;

„Við töluðum bara saman og erum að skipta þessu bróðurlega á milli okkar. Hann er auðvitað besta vítaskytta sögunnar þannig við splittum þessu,“ sagði Helgi að lokum.

Mörkin úr leiknum:
Sterkastur í 12. umferð - Ekki góðir en unnu samt stórsigur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sterkastur í 12. umferð - Ekki góðir en unnu samt stórsigur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Helgi óánægður með frammistöðuna - „Hann er besta vítaskytta sögunnar“

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.