Fotbolti.net
30.06.26 - 09:57
Elvar Geir Magnússon

Ráðherra dansaði gleðidans þegar Íran féll úr leik

Íranska landsliðið

Íranska landsliðið

Canon

Mynd: EPA

Ráðherra heimavarna Bandaríkjanna, Markwayne Mullin, segist hafa dansað gleðidans þegar Íran féll úr leik á HM.

„Ég var svo glaður þegar við gátum tekið vegabréfsáritunina þeirra og sagt að þeir gætu yfirgefið bandaríska jörð. Ég söng og steig gleðidans," sagði Mullin og bætti við:

„Það var ekkert lið sem við þurftum að hafa meira fyrir en Íran."
Íranir skildu eftir handskrifuð skilaboð í klefanum eftir leik
TENGT EFNI

Íranir skildu eftir handskrifuð skilaboð í klefanum eftir leik

Óvissa ríkti um þátttöku Írans á HM vegna stríðsins sem er í gangi í Mið-Austurlöndum og vegna öryggisráðstafana í Bandaríkjunum. Liðið þurfti að færa æfingabúðir sínar frá Bandaríkjunum og í Mexíkó.

Nokkrir af starfsmönnum íranska fótboltasambandsins fengu ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og íranska sambandið gagnrýndi fyrir mót að miðar til stuðningsmanna liðsins voru afturkallaðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.