Helgi Sig: Þá hlýtur það að skila okkur í góðu sæti í lok móts


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA tók á móti Fram á ELKEM vellinum í lokaleik 12. umferðar Bestu deildar karla og lauk leiknum með 0-2 sigri Fram. Rúnar Kristinsson var á hliðarlínunni og stýrði Fram til sigurs en hann er að glíma við veikindi og lét Helga Sigurðsson, aðstoðarþjálfara Fram, sjá um viðtölin eftir leik.
„Mér fannst þetta gríðarlega sannfærandi frammistaða og sanngjörn úrslit. Við náðum að skapa þau færi sem við vildum og þessi tvö mörk sem við skorum gefa okkur það forskot sem við vildum hafa. Síðan snerist þetta bara um að halda því og við gerðum það gríðarlega vel, það var lítið sem Skagamenn náðu að skapa á móti okkur hér í dag.''
Eftir slæmt tap gegn Víkingum í síðustu umferð þá mætti Fram liðið vel í þennan leik og byrjuðu frábærlega.
„Við vorum mjög sáttir með orkustigið í byrjun og hvernig við komum inn í leikinn. Við vorum grimmir á fyrsta og annan bolta og það var alveg sama hvar var litið á liðið, það voru allir að leggja sig fram. Ég er gríðarlega ánægður með strákana að koma vel til baka úr gríðarlega erfiðum leik í síðustu umferð. Við sýndum það að við erum með gott lið og það er alltaf þannig að liðið er gott þegar allir leggja sig fram. Það eru ekki bara þeir ellefu sem byrja þennan leik heldur líka þeir sem koma inn á og þegar við náum að búa til eins stemningu og í dag þá er liðið ansi gott.''
Með sigrinum er Fram komið með 26 stig eftir 12 leiki og eru í 3. sætinu sem gefur Evrópusæti. Liðið er nú komið með sjö stiga forskot á Breiðablik sem er í sætinu fyrir neðan.
„Það er alltaf gott að vinna fótboltaleiki og við höfum unnið þá marga í sumar og við reynum að halda áfram eins vel og við getum og taka einn leik fyrir í einu. Ef við vinnum marga leiki í viðbót þá hlýtur það að skila okkur í góðu sæti í lok móts. Við þurfum samt að halda okkur á tánum og fagna þessu í dag og síðan hefst undirbúningur fyrir leikinn gegn Keflavík næsta mánudag.''




