Nenad eftir 8-1 tap: Mistök sem börn gera ekki


Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson


Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Ægir tapaði 8-1 á útivelli gegn Aftureldingu. Nenad Zivanovic ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.
„Ég get ekki sagt mikið eftir svona stóra niðurstöðu. Ég held að Afturelding sigraði okkur allstaðar á vellinum. Við réðum ekki við þá, þeir voru aggresívir, hraðari, sterkari, betri í skallaboltum. Við töpuðum í hverju einustu baráttu á vellinum."
Nenad segir að mörkin sem Afturelding skoruðu í dag voru gjafir.
„Hversu mikið af mörkunum voru gjafir í dag. Fyrsta, þriðja, fjórða. Bókstaflega voru þetta barnaleg mistök sem krakkar gera ekki. Allt fór rangt í dag."
„Fyrsta mark, við erum með stjórn á boltanum, sending til baka á markvörðinn, hann sparkar boltanum ekki í rétta átt. Boltinn fer upp í loftið upp í loftið og dettur fyrir framan markið, það var erfitt fyrir hann að skora ekki. Seinna markið var betra spil hjá þeim en einn af leikmönnunum mínum sofnaði. Ég var að kalla á hann og gefa honum fyrirmæli um hvern hann á að verja, svo skoraði hann. Þriðja var gjöf."
Fyrirliði Ægis, Stefan Dabetic fékk rautt í dag.
„Ég sá það ekki. Þegar baráttan gerðist í áttina að markinu okkar, svo leit ég á boltann. Ég kem ekki með athugasemd en við verðum að trúa því að dómarinn komst að réttri niðurstöðu"




