Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 24. maí 2019 12:28
Elvar Geir Magnússon
Valur reynir að semja við Gary Martin um starfslok
Gary Martin.
Gary Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Valur að reyna að semja við sóknarmanninn Gary Martin um starfslok.

Gary Martin er í frystikistunni hjá Val og hefur ekki enn fengið að æfa með liðinu. Valsmenn vilja rifta samningi við hann.

Í vetur gerði Valur þriggja ára samning við enska sóknarmanninn og skoraði hann tvö mörk í fyrstu þremur leikjum mótsins.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, hefur ekki viljað tjá sig um mál Gary Martin við fjölmiðla en hann hefur sagt að leikmaðurinn henti ekki leikstíl liðsins.

Íslandsmeistarar Vals fara illa af stað í Pepsi Max-deildinni, eru aðeins með fjögur stig í níunda sætinu eftir fimm umferðir.

Sjá einnig:
Sér ekki að Gary Martin muni spila aftur fyrir Val
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner