Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. maí 2022 13:59
Elvar Geir Magnússon
Kaup Boehly á Chelsea verða frágengin í þessari viku
Bruce Buck og Todd Boehly.
Bruce Buck og Todd Boehly.
Mynd: Getty Images
Salan á Chelsea til Todd Boehly verða að öllum líkindum frágengin í þessari viku. Talið er að Roman Abramovich skrifi undir lagalega bindandi samning um að lán sitt til félagsins fari á bankareikning sem breska ríkisstjórnin stýrir.

Stefnt er á að þegar samþykki hafi fengist þá muni upphæðin svo renna til styrktar fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu.

Chelsea hefur hvorki getað keypt eða selt leikmenn né boðið mönnum nýja samninga. Þá hefur félagið ekki mátt selja nýja miða á heimaleiki sína á Stamford Bridge.

Það er fagnaðarefni fyrir Thomas Tuchel, stjóra Chelsea, að salan sé að ganga í gegn en hann hefur sagst hafa áhyggjur af því að félagið yrði undir í samkeppni um leikmenn þegar glugginn opnar. Chelsea þarf að fá inn varnarmenn.
Athugasemdir
banner
banner
banner