Tottenham Hotspur tókst að bjarga sér frá því sem hefði verið sögulegt fall úr ensku úrvalsdeildinni.
Lærlingum Roberto De Zerbi nægði jafntefli á heimavelli gegn Everton en þeir áttu frábæran fyrri hálfleik og verðskulduðu að taka forystuna þegar Joao Palhinha skoraði eftir hornspyrnu.
Hann skallaði boltann fyrst í stöngina og var heppinn að boltinn rann beint aftur til hans svo honum tókst að fylgja eftir með marki.
Tottenham gerði mjög vel í að drepa leikinn niður í seinni hálfleik og tókst gestunum ekki að skapa mikla hættu fyrr en undir lok uppbótartímans þegar Antonín Kinský átti flotta markvörslu til að innsigla sigur. Heimamenn sköpuðu heldur ekki mikið og gerðu vel að landa afar verðmætum úrslitum til að forðast fall.
Hefði Tottenham tapað gegn Everton voru lærlingar Nuno Espírito Santo í liði West Ham tilbúnir að klifra uppfyrir nágranna sína á stöðutöflunni. Þeir tóku á móti Leeds United og enduðu á að vinna frábæran 3-0 sigur.
Sá leikur var nokkuð jafn í fyrri hálfleik en Hamrarnir skiptu um gír eftir leikhlé og stóðu uppi sem sigurvegarar þökk sé mörkum frá Taty Castellanos, Jarrod Bowen og Callum Wilson.
Á sama tíma hafði Fulham betur gegn Newcastle í þýðingarlitlum leik og gerðu botnliðin jafntefli sín á milli.
Englandsmeistarar Arsenal heimsóttu Crystal Palace og fengu heiðursvörð en bæði lið mættu til leiks með hálfgerð varalið.
Palace er að hvíla leikmenn fyrir úrslitaleik Sambandsdeildarinnar á miðvikudaginn og Arsenal fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn.
Tottenham 1 - 0 Everton
1-0 Joao Palhinha ('43 )
West Ham 3 - 0 Leeds
1-0 Taty Castellanos ('67 )
2-0 Jarrod Bowen ('79 )
3-0 Callum Wilson ('94)
Fulham 2 - 0 Newcastle
1-0 Issa Diop ('20 )
2-0 Tom Cairney ('80 )
Crystal Palace 1 - 2 Arsenal
0-1 Gabriel Jesus ('42 )
0-2 Noni Madueke ('48 )
1-2 Jean-Philippe Mateta ('89 )
Burnley 1 - 1 Wolves
0-1 Adam Armstrong ('5 , víti)
1-1 Zian Flemming ('47 )

