24.07.15 - 15:36
Elvar Geir Magnússon
Hollenskur sóknarmaður í Leikni (Staðfest)

Danny Schreurs er til hægri á myndinni.

Mynd: Getty Images

Danny Schreurs er til hægri á myndinni.

Mynd: Getty Images
Leiknir í Breiðholti hefur fengið til sín hollenskan sóknarmann, Danny Schreurs sem er 27 ára.
Hann hefur fengið gælunafni Messi Schreurs en hann á að hressa upp á sóknarleik Breiðholtsliðsins sem aðeins hefur skorað tvö mörk í síðustu sex leikjum og er í fallsæti Pepsi-deildarinnar.

Schreurs hefur leikið fyrir MVV Maastricht og Roda JC Kerkrade í hollenska boltanum síðustu ár en hann er uppalinn hjá fyrrnefnda félaginu.
Leiknir á gríðarlega mikilvægan leik gegn ÍA á sunnudag í Pepsi-deildinni og er Schreurs kominn með leikheimild fyrir þann leik en verður þó ekki með í honum.
Um er að ræða leikmann sem er ekki hreinræktaður framherji en getur leyst allar sóknarstöðurnar.