Fotbolti.net
24.07.15 - 09:52
Magnús Már Einarsson

Jón Arnar Barðdal í Þrótt (Staðfest)

Jón Arnar Barðdal í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið sóknarmanninn Jón Arnar Barðdal á láni frá Stjörnunni út tímabilið.

Jón Arnar er fæddur árið 1995 en hann hefur komið við sögu í Pepsi-deildinni í ár og í fyrra.
Í sumar hefur Jón Arnar spilað fimm leiki í Pepsi-deildinni og skorað eitt mark, í sigri gegn Fylki.

Jón Arnar er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Þrótt í mánuðinum en áður hafði félagið krækt í miðjumanninn Tonny Mawejje.

Þróttarar eru á toppnum í 1. deildinni en þeir heimsækja BÍ/Bolungarvík á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.