Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari segir að hann og Erik Hamren hafi velt mörgum steinum áður en fyrsti landsliðshópur þeirra var opinberaður í dag.
„Það voru margir leikmenn sem Erik vildi skoða. Hann var með opinn huga gagnvart mörgum leikmönnum og svo þurfti að þrengja það," segir Freyr sem talaði mikið um það á fréttamannafundi í dag að það væri nýtt upphaf hjá öllum.
„Við viljum velja bestu 23 leikmennina hverju sinni óháð aldri. Við teljum þetta besta liðið núna. Hamren er bara að byrja og hann á eftir að sjá leikmennina betur og kynnast persónuleikunum. Leikmenn fá tækifæri til að sanna sig og ég vona að þetta verði til þess að við lyftum öllu liðinu upp, bæði fastamönnum og þeim sem hafa verið inn og út. Allir fari upp á tærnar og við fáum samkeppni og sterka stemningu inn í hópinn."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir