Fotbolti.net
24.09.20 - 09:21
Magnús Már Einarsson

Smit á æfingum hjá KSÍ - Margir í sóttkví

Smit á æfingum hjá KSÍ - Margir í sóttkví
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Smitrakningateymi Almannavarna hefur upplýst KSÍ um að einn þátttakandi í Hæfileikamótun drengja sem fram fór í Egilshöll í Reykjavík um síðustu helgi hafi greinst smitaður af Covid-19.
Af þeim sökum þurfa aðrir þátttakendur (leikmenn og aðrir) að fara í sóttkví samkvæmt ákvörðun smitrakningateymisins.

Allir hlutaðeigandi hafa verið upplýstir um stöðuna og viðeigandi ráðstafanir hafa verið gerðar.

Ákveðið hefur verið að fresta Hæfileikamótun stúlkna sem fara átti fram um komandi helgi þar sem umsjónarmenn Hæfileikamótunar KSÍ eru á meðal þeirra sem eru í sóttkví.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.