Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 24. september 2022 21:19
Ívan Guðjón Baldursson
Van Dijk um Timber: Ég var ekki svona góður á hans aldri
Mynd: EPA

Jurriën Timber, miðvörður Ajax og hollenska landsliðsins, hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína á báðum vígstöðvum.


Timber er 21 árs og var partur af þriggja manna varnarlínu Hollendinga á útivelli gegn Póllandi í Þjóðadeildinni í kvöld. Þar var hann við hliðina á Virgil van Dijk og Nathan Aké, sem leika fyrir tvö af bestu liðum heims.

Hann var eftirsóttur í sumar og skrifaði undir nýjan samning við Ajax sem gildir til 2025.

„Ég var ekki svona góður á hans aldri, hann er bara 21 árs. Ég get bara hrósað honum, hann er ótrúlega efnilegur leikmaður," sagði Van Dijk.

Timber er miðvörður að upplagi en getur einnig spilað í hægri bakverði.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner