Fotbolti.net
24.09.26 - 11:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar"

„Eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Benedikt Warén hefur skorað tvennu í síðustu tveimur leikjum Stjörnunnar og er alls kominn með níu mörk og fjórar stoðsendingar í Bestu deildinni á tímabilinu í 17 byrjunarliðsleikjum og alls 20 leikjum. Hann glímdi við meiðsli í maí og missti þá af leikjum.

Hann hefur skapað 16 stór færi fyrir liðsfélaga sína sem samkvæmt Fotmob skorar næsthæst af leikmönnum í deildinni. Einungis Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur skapað fleiri stór færi fyrir liðsfélaga sína. Þar er hann líka með tíundu hæstu meðaleinkunnina af leikmönnum deildarinnar.
Stjarnan hefur valdið talsverðum vonbrigðum á tímabilinu, liðið er í 8. sæti en búist var við því að liðið yrði í toppbaráttu á tímabilinu. Benedikt hefur spilað meira sem fremsti miðjumaður eftir komu Birnis Snæs Ingasonar en spilaði áður mest á vinstri kantinum.

„Hann er búinn að vera frábær í sumar finnst mér, eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar," sagði Sigurður Egill Lárusson í Innkastinu. Í þættinum var rætt um falleg mörk hans gegn FH og má sjá þau bæði hér að neðan.

„Eiginlega eini ljósi punkturinn hjá Stjörnunni í sumar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Valur24-331
2Stjarnan24-931
3FH24-627
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV24-1519
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.