Fotbolti.net
24.09.26 - 10:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Yoro kallaður í A-landsliðið og mætir ekki Íslandi

Yoro kallaður í A-landsliðið og mætir ekki Íslandi
Canon

Mynd: EPA

Leny Yoro, varnarmaður Manchester United, hefur verið kallaður úr franska U21 landsliðinu og í A-landsliðið.

Yoro var í U21 hópnum sem mætir Íslandi í Laugardalnum á föstudag í undankeppni EM.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Yoro verður hluti af A-landsliði Frakka.
Hann kemur inn í A-landsliðið fyrir Ibrahima Konate, miðvörð Real Madrid, sem glímir við hnémeiðsli.

Yoro er tvítugur og gæti spilað sinn fyrsta landsleik á föstudag þegar Frakkar mæta Tyrkjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.