Fotbolti.net
24.10.23 - 18:32
Brynjar Ingi Erluson

Bill Kenwright er látinn

Bill Kenwright er látinn

Bill Kenwright er látinn

Canon

Mynd: Getty Images

Bill Kenwright, stjórnarformaður Everton á Englandi, er látinn, 78 ára að aldri.
Stjórnarformaðurinn greindist með krabbamein í lifur fyrir nokkrum mánuðum, en Everton greindi frá því á samfélagsmiðlum að Kenwright hafi farið undir hnífinn til að fjarlægja meinið. Hann lést síðan í gær í faðmi fjölskyldunnar.

Kenwright var einn farsælasti leikhús og bíómynda framleiðandi Bretlandseyja, en hann var einnig sjálfur á sviði og söng þar að auki.

Englendingurinn var í stjórn Everton frá 1989, en tíu árum síðar keypti hann stóran hlut í félaginu.

Árið 2004 gerðist hann stærsti hluthafinn í Everton og um leið tók hann við stöðu stjórnarformanns og gegndi hann þeirri stöðu fram að dánardegi sínum.

Fyrir sjö árum seldi Kenwright 49,9 prósent hlut í félagin til íranska auðjöfursins Farhad Moshiri, en sá hlutir hækkaði upp í 94 prósent á síðasta ári.

Síðustu tvö tímabil hefur Everton verið í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni og kölluðu stuðnignsmenn félagsins eftir því að Kenwright yrði látinn fara og að þeir báru ekkert traust til hans sem stjórnarformanns, en hann lét það ekki á sig fá og hélt áfram að sinna starfi sínu.

Í september samþykkti Moshiri að selja hlut sinn til 777 Partners og er greint frá því að Kenwright hafði lagt mikla vinnu í að láta það verða að veruleika, alveg fram að dánardegi.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.