Fotbolti.net
25.01.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland í dag - Bayern tekur á móti Schalke

Þýskaland í dag - Bayern tekur á móti Schalke
Canon

Mynd: Getty Images

Það er nóg um að vera í þýska boltanum í dag þar sem toppliðin eiga bæði erfiða leiki fyrir höndum.
RB Leipzig, sem er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar, heimsækir Eintracht Frankfurt sem hefur verið að spila undir getu á tímabilinu.

Íslendingaliðin tvö mæta til leiks á sama tíma en ólíklegt er að Alfreð Finnbogason verði með Augsburg gegn Union Berlin vegna meiðsla. Samúel Kári Friðjónsson gæti þó komið við sögu er botnlið Paderborn heimsækir Freiburg.

Borussia Mönchengladbach og Wolfsburg eiga svo heimaleiki áður en síðasti leikur laugardagsins, og jafnframt stærsti leikur helgarinnar, fer af stað.

Þar eigast FC Bayern og Schalke við í mikilvægum slag fyrir bæði lið. Bayern er í öðru sæti og Schalke í því fimmta, en aðeins þrjú stig skilja liðin að.

Leikir dagsins:
14:30 Frankfurt - Leipzig
14:30 M'Gladbach - Mainz
14:30 Freiburg - Paderborn
14:30 Union Berlin - Augsburg
14:30 Wolfsburg - Hertha Berlin
17:30 FC Bayern - Schalke

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.