Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. janúar 2021 13:54
Magnús Már Einarsson
Arteta um Rúnar Alex: Við þurfum þrjá markverði
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í Rúnar Alex Rúnarsson á fréttamannafundi sínum í dag.

Arsenal fékk markvörðinn Mat Ryan á láni frá Brighton á föstudaginn en fyrir hjá félaginu eru Bernd Leno og Rúnar Alex.

Rúnar Alex hefur verið varamarkvörður Arsenal á tímabilinu en hann var gagnrýndur eftir frammistöðu sína gegn Manchester City í síðasta mánuði.

Eftir að Ryan kom til Arsenal fóru af stað sögusagnir um að Rúnar Alex myndi fara á lán en miðað við orð Arteta í dag verður svo ekki.

„Allir þurfa að hafa þrjá markverði. Þeir þurfa að berjast við hvorn annan, vera áskorun fyrir hvorn annan og allir hafa sitt hluverk. Þeir þurfa að koma hingað og reyna að gera okkur betri," sagði Arteta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner