Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, náði merkum áfanga í kvöld en hann hefur nú komið að hundrað mörkum á þremur árum sínum hjá félaginu.
Portúgalski miðjumaðurinn kom til United frá Sporting í janúarglugganum fyrir þremur árum síðan.
Hann kom að tuttugu mörkum á fyrsta tímabili sínu og gerði enn betur tímabilið á eftir. Þá kom hann að 45 mörkum liðsins og var meðal annars markahæsti maður liðsins með 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Fernandes hefur reynst liðinu vel og í kvöld náði hann þeim magnaða áfanga að koma að 100. marki sínu fyrir félagið er hann skoraði þriðja mark United í 3-0 sigrinum á Nottingham Forest í enska deildabikarnum.
Portúgalinn hefur því skorað 56 mörk og lagt upp 44 í 155. leik sínum. Ótrúlegar tölur.
100 - Bruno Fernandes' goal was his 100th goal involvement for Manchester United in all competitions (56 goals, 44 assists), in his 155th appearance for the club. Silenzio. #NFOMUN
— OptaJoe (@OptaJoe) January 25, 2023
Athugasemdir