Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. janúar 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
RB Leipzig hafnaði tilboði Brighton í Haidara
Mynd: EPA
Þýska félagið RB Leipzig hafnaði tilboði Brighton í miðjumanninn Amadou Haidara og segist ekki vilja selja hann í þessum glugga.

Haidara, sem hefur áður verið orðaður við Manchester United og Liverpool, skilur afstöðu félagsins og sættir sig við hana.

Klásúla í samningi hins 24 ára gamla Haidara leyfir honum að yfirgefa þýska félagið í sumar og má búast við miklum áhuga á honum.

Leipzig er fjórum stigum á eftir toppliði Bayern München í þýsku Bundesligunni.

Brighton leitar að leikmanni sem gæti fyllt skarð Moises Caicedo sem er á óskalista Chelsea. Ekvadorinn er einnig á óskalista Liverpool en mun verða áfram hjá Brighton út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner