Fotbolti.net
25.02.26 - 23:28
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Sjáðu mörkin og umdeilda rauða spjaldið í Víkinni

Víkingur vann bikarinn.

Víkingur vann bikarinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann Þrótt í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr í kvöld. Íslandsmeistararnir brutu ísinn undir lok fyrri hálfleiks þegar Davíð Helgi Aronsson skoraði eftir fyrirgjöf frá Ármanni Inga Finnbogasyni.

Á 83. mínútu jafnaði Þróttur metin en Aron Snær Ingason skoraði þá glæsilegt mark. Hann lét vaða af löngu færi og boltinn fór í bláhornið.

Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma fékk Brynjar Gautur Harðarson sitt annað gula spjald og þar með rautt, dómur sem Sigurvin Ólafsson var vægast sagt ósáttur með og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir leik.

Víkingum tókst að nýta sér liðsmuninn því Stígur Diljan og Atli Þór Jónasson skoruðu með stuttu millibili og tryggðu Víkingum titilinn.

Sjáðu öll mörkin og umdeilda rauða spjaldið í spilaranum hér að neðan.

Víkingur R. 3 - 1 Þróttur R.
1-0 Davíð Helgi Aronsson ('43 )
1-1 Aron Snær Ingason ('83 )
2-1 Stígur Diljan Þórðarson ('90 )
3-1 Atli Þór Jónasson ('92 )
Rautt spjald: Brynjar Gautur Harðarson, Þróttur R. ('88)
Lestu um leikinn
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
TENGT EFNI

Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.