Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   mið 25. febrúar 2026 22:16
Kári Snorrason
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Sigurvin Ólafsson.
Sigurvin Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gautur var rekinn af velli.
Brynjar Gautur var rekinn af velli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingsvöllur var snævi þakinn fyrir leik.
Víkingsvöllur var snævi þakinn fyrir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann Þrótt í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr í kvöld. Íslandsmeistararnir komust yfir skömmu fyrir hálfleik en Þróttur jafnaði metin á 83. mínútu.

Skömmu eftir jöfnunarmarkið fékk Brynjar Gautur Harðarson, leikmaður Þróttar, að líta rauða spjaldið og í kjölfarið skoruðu Víkingar tvö mörk sem tryggðu þeim sigurinn og Reykjavíkurmeistaratitilinn.

Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir leik.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  1 Þróttur R.

„Ég var mjög ánægður með leikinn af okkar hálfu. Þetta var að vísu mjög erfitt í fyrri hálfleik á móti vindi og hríð. En við vorum hugrakkir og reyndum að spila okkur í gegnum Íslandsmeistarana. Ég var ánægður með hugrekkið þó að það hafi legið svolítið á okkur seinni part fyrri hálfleiks. Mér leið ágætlega í hálfleik.

Stemningin var búin að vera með okkur í seinni hálfleik. Mér fannst lítið að frétta hjá þeim. Það var alls ekkert ósanngjarnt að við skyldum jafna. Þá vill maður auðvitað ná í sigurmarkið. En dómaratríóið sló þetta úr höndunum á okkur með að reka mann út af hjá okkur og gefa þeim dauðafæri.“


„Þetta er bara þvæla“
Brynjar Gautur fékk seinna gula spjald sitt eftir brot á miðjum velli, hann fékk þó ekki rauða spjaldið strax. Dómarar leiksins beittu hagnaðarreglunni og Víkingar keyrðu að marki Þróttar. Um leið og Brynjar hafði aftur áhrif á leikinn (sem gerðist við vítateig Víkings) þá flautaði Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins, rak hann af velli og dæmdi aukaspyrnu á stórhættulegum stað sem Víkingur skoraði svo upp úr.

„Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu. Ég hef aldrei nokkurn tímann áður séð þetta. Að leikmaður sem er mögulega að fá sitt seinna gula spjald og að leikurinn sé stoppaður við vítateigslínu hjá mér til þess að reka hann út af á meðan boltinn er í leik. Dómarinn hefur tjáð mér að þetta sé einhvers konar regla.

Hvað á þessi maður að gera þegar hann er búinn að fá gult og brýtur aftur af sér. Hann veit ekkert að hann sé að fá annað gult spjald, hann er ekkert viss um það. Á hann að labba út af vellinum? Hann er rekinn út af fyrir að hafa áhrif á leikinn af því að hann er mögulega að fá annað gult spjald. Þetta er bara þvæla.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
banner
banner