25.03.15 - 17:46
Magnús Már Einarsson
Landsleikurinn verður í beinni á RÚV (Staðfest)

Strákarnir verða í beinni á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Strákarnir verða í beinni á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ljóst er að leikur Íslands og Kasakstan verður í beinni útsendingu á RÚV klukkan 15:00 á laugardag.
Tæknimenn hjá RÚV ætluðu að hefja verkfall í fyrramálið en fyrsta hrina verkfallsins átti að standa fram á mánudag. Því var mikil óvissa um það hvort landsleikurinn yrði sýndur.

Nú hefur félagsdómur komist að þeirri niðurstöðu að boðað verkfall sé ólöglegt en þetta kemur fram á vef RÚV.
Samningamenn Rafiðnaðarsambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sitja enn á samningafundi hjá Ríkissáttasemjara. Rafiðnaðarsambandið krefst þess að Samtök atvinnulífsins, sem hafa samningsumboðið fyrir hönd RÚV, geri sérkjarasamning við tæknimennina. Því hefur SA neitað og kærði verkfallsboðunina til Félagsdóms, sem kvað upp sinn úrskurð rétt fyrir klukkan fimm.
Nýtt samningstilboð kom frá RÚV í dag þess efnis að hluti samnings verði sérstaklega við RÚV. Samninganefnd Rafiðnaðarsambandsins hyggst fara yfir tilboðið í dag og á morgun en nýr fundur hefur verið boðaður í deilunni klukkan 10 á föstudagsmorgun.
RÚV segir hins vegar ljóst að landsleikurinn verði sýndur í beinni útsendingu klukkan 15:00 á laugardag þar sem félagsdómur hefur úrskurðað að boðað verkfall sé ólöglegt.

Heimild: RÚV