Guðmundur Andri Tryggvason lék með Víkingum í Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð. Hann varð bikarmeistari með liðinu.
GAT er á mála hjá Start í Noregi og hafði farið vel af stað á undirbúningstímabilinu. Í dag sýnir hann hina hliðina sína.
GAT er á mála hjá Start í Noregi og hafði farið vel af stað á undirbúningstímabilinu. Í dag sýnir hann hina hliðina sína.
Fullt nafn: Guðmundur Andri Tryggvason
Gælunafn: GAT
Aldur: 20
Hjúskaparstaða: Frátekinn
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2014 held ég
Uppáhalds drykkur: Nocco blueberry
Uppáhalds matsölustaður: Yuzu burgers
Hvernig bíl áttu: Bíllaus eins og er 😞
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Strákarnir real goat
Uppáhalds tónlistarmaður: Future
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi krull auto
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Jarðarber, mars, oreo og daim
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sorry for the noise, small work out here (nágranninn í eh stuði)
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Colchester, aldrei fýlað þá.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jadon Sancho geit
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Arnar Gunnlaugs og the deadly duo Óskar Hrafn og Halldór Árna
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Torfi Tímóteus, eini sem nær að vasa mig.
Sætasti sigurinn: Það mun vera bikarúrslit í fyrra helvíti sætur sá.
Mestu vonbrigðin: Shellmótið 2009 situr ennþá í mér.
Uppáhalds lið í enska: Arsenal því miður.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr íslensku liði í þitt lið: Kristján Flóka
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Orri Steinn Óskarsson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Elfar Freyr Helga enda náskyldur mér
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Ásdís Karen tjékkið á henni!
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: haha þessi er auðveld, CR7
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Luigi og Ágúst Hlyns voru helvíti öflugir þegar ég var hjá Víkingum.
Uppáhalds staður á Íslandi: 107 Reykjavík
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Spilaði einu sinni með smokk á mér. Förum ekkert nánar út í það.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Rúlla yfir snappið gá hvort það sé ekki alveg örugglega allt uppá 10.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Var heitur fyrir pílunni í fyrra alvöru passion , annars specca ég alltaf körfuna Dominos deildina
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Pink vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla:Mætingu, má segja það?
Vandræðalegasta augnablik: Ég er alveg frosinn hérna veit ekki neitt
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Atli Andrason (sá skipulagði) Kolbeinn Finnson uppá húmor (sá heimski) og svo Luigi uppá stemmarann.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Yngsti markaskorari KR frá upphafi
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Nánast allt Gróttu liðið fyrrum samherjar ,fyrir þetta ruglaða afrek í fyrra.
Hverju laugstu síðast: Laug að mömmu að ég væri hevlíti góður bara á degi 4 í sóttkví
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup guð minn góður
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: Frekar rólegur byrja daginn á nocco áður en ég kenni nokkrum trúðum á cod, Jón Dagur ekkert eðlilega lélegur en ég er að vinna í þessu fyrir hann.
Athugasemdir