Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. mars 2023 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle að stela yfirnjósnaranum úr akademíu Man Utd
Mynd: Getty Images

Fabrizio Romano greinir frá því að Newcastle United sé búið að semja við David Harrison.


Newcastle stelur honum þar með frá Manchester United þar sem hann hefur starfað sem yfirnjósnari fyrir unglingaliðið undanfarin ár.

Harrison fær stöðuhækkun hjá Newcastle þar sem hann verður með yfirumsjá yfir öllum nýjum ungum leikmönnum félagsins. Auk þess að starfa við akademíuna mun hann einnig starfa með aðalliðinu.

Nýir eigendur Newcastle eru staðráðnir í því að styrkja félagið á réttan hátt og eru komnir góða leið með að styrkja innviðina. 


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner