Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   mið 25. mars 2026 15:59
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Pirraður að vera utan hóps
Viktor Bjarki í viðtali við Fótbolta.net.
Viktor Bjarki í viðtali við Fótbolta.net.
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: EPA

„Geggjað, mjög spennandi að vera loksins kominn hingað. Spennandi verkefni og spennandi leikir, ég er bara mjög spenntur" sagði Viktor Bjarki Daðason leikmaður U21 landsliðsins og FCK fyrir leik gegn Eistlandi.


Varstu að búast við kallinu í A landsliðið?

„Auðvitað hefði verið gaman að fara í A landsliðið, auðvitað skipta þessir leikir líka máli en það hefði verið mjög gaman. Ég er mjög spenntur að spila þessa mikilvægu leiki og vonandi hjálpa liðinu að komast áfram."

Hvernig er staðan hjá FCK þessa daganna?

„Hún er bara eins og hún er. Ekki búið að ganga svakalega vel í deildinni, það er búið að vera mikil krítík í fjölmiðlum. Ég meina svona er fótboltinn, við verðum bara að halda áfram, vonandi tikkar þetta aftur."

Fékkstu útskýringu af hverju þú varst ekki í hóp í tveim leikjum?

„Já, það var bæði hann vildi kraft í hópinn, við skiptum um kerfi, skiptum í fimm manna, svo hann vildi meiri kraft og reynslu inn í þessa leiki. Hann gaf mér bara útskýringu á því, auðvitað var ég pirraður, vil spila alla leiki. Þannig er það bara, en svo kom ég í hóp í seinasta leik og gerði bara fínt."

„Þegar gengur illa er auðvitað pressa og kannski vill þjálfarinn gera eitthvað annað en hann hefur verið að gera. Ég bara reyndi að æfa fyrir mig sjálfan og gera mig betri."

Hvernig finnst þér stemningin vera í klúbbnum, eru stuðningsmenn æfir?

„Já, auðvitað þegar klúbburinn er svona stór í Skandinavíu þá eru kröfur á manni. Aðdáendur eru mjög reiðir núna, það er bara skiljanlegt en það er pressa en við verðum bara að halda áfram og vonandi tikkar það."

Viktor er númer 41 á lista Goal next gen um efnilegustu leikmenn.

„Bara geggjað sá þetta í gær. Það er geggjað að sjá nafnið en maður er ekkert að pæla í þessu svakalega mikið."


Slapp
banner