Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. apríl 2021 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meistaradeild kvenna: Barcelona með útivallarmark í seinni leikinn
Mynd: EPA
PSG 1 - 1 Barcelona
0-1 Jenifer Hermoso ('13 )
1-1 Alana Cook ('21 )

PSG og Barcelona mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í dag.

Gestirnir frá Barcelona komust yfir á 13. mínútu þegar Hermoso skoraði eftir undirbúning frá Bonmati.

Heimakonur jöfnuð leikinn skömmu síðar með marki frá Cook eftir undirbúning frá Katoto.

Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku á heimavelli Barcelona. Klukkan 15:00 hefst leikur Bayern og Chelsea í hinni undanúrslita viðureigninni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á varamannabekk Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner