Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. maí 2019 17:09
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Bröndby í umspil um Evrópusæti
Mynd: Getty Images
OB 0 - 2 Bröndby
0-1 Kamil Wilczek ('38)
0-2 Mikael Uhre ('73)
Rautt spjald: Simon Hedlund, Bröndby ('81)

Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Bröndby vann sinn þriðja leik í röð og tryggði sér fjórða sæti dönsku deildarinnar í lokaumferðinni.

Bröndby heimsótti OB og þurfti sigur í úrslitaleik um 4. sætið. Kamil Wilczek skoraði í fyrri hálfleik og innsiglaði Mikael Uhre sigurinn eftir leikhlé.

Fjórða sætið gefur þátttökurétt í úrslitaleik Evrópudeildarumspilsins sem verður gegn annað hvort Randers eða Århus.
Athugasemdir
banner
banner
banner