Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. maí 2020 18:22
Brynjar Ingi Erluson
Joao Felix aftur á meiðslalista Atlético
Joao Felix
Joao Felix
Mynd: Getty Images
Portúgalski leikmaðurinn Joao Felix verður að öllum frá er spænska deildin hefst aftur um miðjan júní en hann meiddist á æfingu með Atlético Madrid.

Felix gekk til liðs við Atlético frá Benfica síðasta sumar fyrir metfé eða 126 milljónir evra en hann hefur lítið getað sýnt hæfileika sína á vellinum sökum meiðsla.

Hann meiddist á hné á æfingu Atlético á dögunum og er ljóst að hann verður ekki klár er tímabilið fer aftur af stað á Spáni.

Þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem hann meiðist en hann hefur aðeins spilað 28 leiki, skorað 6 mörk og lagt upp 3 til þessa.

Diego Simeone, þjálfari Atlético, hefur verið í erfiðleikum með að ná því besta úr Felix en hann portúgalski leikmaðurinn hefur spilað mismunandi stöður í mismunandi leikkerfum Simeone.
Athugasemdir
banner
banner