Fotbolti.net
25.06.18 - 10:50
Magnús Már Einarsson

Heimir: Stærsta afrekið í sögu okkar ef við förum áfram

Heimir: Stærsta afrekið í sögu okkar ef við förum áfram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
<i>„Ef við komumst áfram í 16-liða úrslit yrði það líklega stærsta afrekið í stuttri sögu íslenska landsliðsins,\"</I> sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi í dag.

Ísland getur komist áfram í 16-liða úrslit HM með sigri gegn Króatíu á morgun og hagstæðum úrslitum í leik Nígeríu og Argentínu.
„Einungis helmingur af liðunum kemst í 16 liða úrslit. Fyrir þjóðir eins og Argentína, Portúgal og Þýskaland væri áfall að komast ekki áfram.\"

„Ef við komumst áfram í 16-liða úrslit yrði það líklega stærsta afrekið í sögu íslenska landsliðsins. Það setur þetta í samhengi fyrir okkur og aðra. Það sýnir hversu mikið það myndi þýða fyrir okkur og fyrir þjóðina.\"


Spurningin kom frá erlendum fjölmiðlamanni sem spurði hvernig stemningin yrði á Íslandi þegar liðið fer áfram.

„Ég kann vel við jákvæðnina,\" sagði fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson eftir spurninguna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.