Hvernig endaði ég aftur hér?

Þarna sést glitta í svæðið þar sem íslenska landsliðið er að undirbúa sig fyrir EM. Um helgina heldur liðið til Sviss og er fyrsti leikur gegn Finnlandi 2. júlí.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Göngutúrarnir í Stara Pazova eru skemmtilegir og áhugaverðir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sólsetur í Stara Pazova í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frá æfingu Íslands í Serbíu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ótrúlegt en satt þá er McDonald's hérna. Gyllta M-ið úr fjarlægð.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þarna sést glitta í svæðið þar sem íslenska landsliðið er að undirbúa sig fyrir EM. Um helgina heldur liðið til Sviss og er fyrsti leikur gegn Finnlandi 2. júlí.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson


Skoðanapistill
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stara Pazova í Serbíu er klárlega einn athyglisverðasti staður sem ég hef heimsótt í mínu starfi.

Þær fara á EM fyrir Íslands hönd
Það má segja að íslenska liðið sé í smá búbblu á þessu fótboltasvæði þar sem þarna er mjög flott hótel og frábærar aðstæður til fótboltaiðkunnar. Það er ekki mikið annað nálægt þessu svæði nema nokkur bílaverkstæði en það tekur um 20 mínútur að labba frá svæðinu og inn í miðbæ Stara Pazova, ef miðbæ má kalla. Stelpurnar hafa ekki verið að fara mikið frá svæðinu og er einbeiting þeirra á undirbúninginn fyrir EM í hámarki.
Þetta er í annað sinn þar sem íslenska landsliðið er á þessu svæði en liðið var líka hérna í fyrra er þær gerðu 1-1 jafntefli við Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar. Það var mín fyrsta heimsókn til Stara Pazova og ég hugsaði að það yrði nú líklega mín síðasta.
En svo var aldeilis ekki því hingað er ég komin aftur, ótrúlegt en satt. Þegar ég keyrði inn í borgina í dag og sá aftur allt það sem ég hafði séð í fyrra, þá hugsaði ég: 'Hvernig endaði ég aftur hér?' Það tók mig smá tíma að átta mig almennilega á því að ég væri kominn aftur hingað í austustu Evrópu.
Þegar maður gengur hér um göturnar þá líður manni allavega eins og maður sé kominn í austustu Evrópu. Þetta er mjög ólíkt Íslandi; mikið gamaldags og mikil harka. Ef þið hafið séð myndina, þá er þetta pínu eins og atriðið í Eurotrip þegar þau mæta til Bratislava. Ekki alveg, en það er smá þannig fílingur í þessu og svo sannarlega er hér serbneskur sveitabragur. Þetta er iðnaðarborg en hérna vinna flestir í einhvers konar framleiðslu eða við bílaviðgerðir.
Fyrir 26 ára gamla Íslendinginn er svo sannarlega áhugavert að labba um borgina með heyrnartólin á eyrunum að hlusta annað hvort á Innkastið eða Jóa Skúla og Orra Eiríks í Draumaliðinu. Ég gerði mikið af því síðast þegar ég kom og í kvöld gekk ég örugglega einhverja 10 kílómetra til þess að taka viðtöl við leikmenn landsliðsins. Ég er á hóteli inni í borginni og það eru tæpir þrír kílómetrar í hótel landsliðsins þar sem viðtölin voru tekin. Það er jú ekki auðvelt að fá leigubíl í sveitinni í Serbíu, eiginlega bara ómögulegt. En á göngutúrum hér í bæ rekst maður á alls konar skemmtilega karaktera sem eru flestir bara nokkuð ánægðir með lífið.
Það er skemmtileg reynsla að fá að upplifa Stara Pazova og hvað þá í annað sinn. Það er ekki mikið af túristum hérna og ég held svei mér þá að ég sé mögulega sá fyrsti sem gistir á hótelinu mínu á þessu ári. Þetta er ekki beint staður sem maður heimsækir í fríinu sínu og hreinlæti er ekki efst í huga, en það er sjarmi yfir þessum bæ sem gaman er að upplifa og hér er af einhverri ástæðu fótboltaaðstaða á góðu stigi.
Fyrir stelpurnar okkar er veran hér í Stara Pazova ótrúlega mikilvæg. Þær eru í æfingabúðum og spila æfingaleik gegn heimakonum á föstudag. Það er síðasti leikurinn fyrir EM og að mínu mati er mikilvægt að taka sigur þar og taka smá sjálfstraust með okkur inn á mótið. Það er dauðafæri fyrir Ísland að komast upp úr riðlinum á EM í annað sinn í sögunni og hér í sveitinni í Serbíu er grunnur lagður að góðum árangri og öflugri liðsheild fyrir stóru stundina í Sviss.
Fyrir okkur á Fótbolta.net er veran hér líka mikilvæg: Að kvennalandsliðið fái þá umfjöllun sem það á skilið. Þetta er byrjunin á skemmtilegu ævintýri sem heldur áfram í Sviss í næstu viku. Hér á síðunni verður vel fjallað um Ísland á Evrópumótinu, eins og á síðustu mótum. Það verða fréttir hér á síðunni um liðið á hverjum degi fram að móti og auðvitað líka þegar mótið byrjar. Endilega fylgist vel með.
Eitt að lokum: Í sveitinni í Serbíu tókst mér að finna McDonald's veitingastað. Sá frábæri veitingastaður er við bensínstöð í Stara Pazova en ekki í Reykjavík. Hugsum aðeins um það.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur

Göngutúrarnir í Stara Pazova eru skemmtilegir og áhugaverðir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sólsetur í Stara Pazova í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frá æfingu Íslands í Serbíu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ótrúlegt en satt þá er McDonald's hérna. Gyllta M-ið úr fjarlægð.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson







