Klukkan 17:00 flautar Erlendur Eiríksson til leiks á Domusnovavellinum í Breiðholti þegar Leiknir Reykjavík og KA mætast í 14. umferð Pepsi Max-deildar karla.
Leiknir Reykjavík fékk Stjörnuna í heimsókn í síðustu umferð og unnu 2-0 með mörkum frá Sævari Atla Magnússyni og Hjalta Sigurðssyni. KA menn fengu HK í heimsókn norður og unnum einnig sinn leik 2-0. Ásgeir Sigurgeirsson og Daníel Hafsteinsson sáu um markaskorun KA í þeim leik.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Domusnova!
Sigurður Höskuldsson gerir enga breytingu frá síðustu umferð. Sólon Breki Leifsson sem hefur verið á meiðslalista Leiknismanna er kominn aftur í hóp og byrjar á bekknum hjá Leiknismönnum í dag.
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, gerir þrjár breytingar frá sigurleiknum gegn HK í síðustu umferð. Ívar Örn Árnason, Jonathan Hendrickx og Sveinn Margeir Hauksson koma inn í liðið fyrir Dusan Brkovic, Sebastiaan Brebels og Andra Fannar Stefánsson.
Byrjunarlið Leiknis:
12. Guy Smit (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Bjarki Aðalsteinsson
5. Daði Bærings Halldórsson
7. Máni Austmann Hilmarsson
10. Sævar Atli Magnússon (f)
11. Brynjar Hlöðversson
18. Emil Berger
19. Manga Escobar
23. Dagur Austmann
26. Hjalti Sigurðsson
Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
20. Mikkel Qvist
26. Jonathan Hendrickx
27. Þorri Mar Þórisson
30. Sveinn Margeir Hauksson
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Domusnova!
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir