Logi Ólafs: Eitt stig betra en ekkert
Auglýsing

Logi Ólafsson þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi Ólafsson þjálfari Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur gerði 2-2 jafntefli við KA á heimavelli í Pepsí-deild karla í kvöld þar sem þeir jöfnuðu metin í blálokin. Logi Ólafsson þjálfari Víkings sagði að eftir slakan fyrri hálfleik sé hann mjög sáttur með að ná í eitt stig.
„Hún er bara eðlilega mjög góð, það er betra að fá eitt stig en ekkert og úr því sem komið var. Við vorum mjög slakir í fyrri hálfleik og lendum 2-0 undir en náum að jafna á síðustu sekúndum leiksins og það sýnir að það er ennþá smá töggur í okkur.\"
Andreas Larsen var mjög góður í markinu og varði oft á tíðum glæsilega, Logi hrósaði honum í hástert.
„Við erum mjög opnir í fyrri hálfleik og Andreas bjargar okkur með að vera stórkostlegur í markinu.\"
Víkingar eru ekki sloppnir við falldrauginn ennþá en geta farið ansi langt með það ef þeir vinna næsta leik á móti ÍBV, Logi veit að það verður erfiður leikur.
„Það er alveg ljóst að við verðum að ná í þrjú stig í erfiðum leik í Vestmannaeyjum og við tökum það með okkur sem gekk vel hér í dag.\"
Sölvi Geir Ottesen fyrirliði Víkinga er búinn að vera frá vegna meisðla í síðustu leikjum og er alls ekki klár samkvæmt Loga.
„Nei ég efa það, það væri þá í fyrsta lagi eftir landsleikjahléið, það er svona veik von.\"