Fotbolti.net
25.08.19 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

David Luiz: Ekki víti á peysutogið

David Luiz: Ekki víti á peysutogið
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool sigraði í gær lið Arsenal, 3-1, á Anfield í þriðju umferð ensku úrvasldeidarinnar.

Mo Salah skoraði tvö mörk fyrir Liverpool en það var Joel Matip sem kom heimamönnum yfir. Lucas Torreira skoraði svo sárabótarmark fyrir Arsenal undir lok leiksins.
David Luiz, varnarmaður Arsenal, lenti í alls konar basli þegar hann átti við Mo Salah í leiknum.

Luiz fékk dæmt á sig víti þegar hann togaði í treyju Salah og svo fór Salah ansi illa með Luiz í þriðja marki Liverpool.

Luiz er ekki á þeim buxunum að það hefði átt að dæma vítaspyrnu á sig þó greinilega hafi sést að hann reif í treyju Salah.

„Þetta voru sjálfkrafa viðbrögð hjá mér. Það var enginn kraftur í toginu. Ég spurði Salah útí þetta og hann sagðist ekki hafa fundið fyrir neinu og þess vegna fór hann ekki niður."

„Við erum komin með VAR og þar sést ekki hvort togað sé af einhverju afli og það gerir þetta erfitt fyrir dómara. Hann sá peysutogið, ég get ekki kvartað, þetta er erfitt að meta. Ef þú spilar í of stórri treyju gæti verið dæmt víti í öllum tilvikum. Það er túlkun dómara. Ef hins vegar togað er af krafti og þú truflar hlaup andstæðingsins þá er það annað. Í þessu atriði voru þetta bara sjálfkrafa viðbrögð."

„Ég var kominn með gult spjald og gat því ekki tekið Salah niður í þriðja markinu, spjaldið í vítinu gerði mér mjög erfitt fyrir í leiknum."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.