Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. ágúst 2019 16:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir B'mouth og City: D. Silva maður leiksins í 400. leiknum
David Silva og Bernardo Silva í leiknum í dag.
David Silva og Bernardo Silva í leiknum í dag.
Mynd: Getty Images
Manchester City vann í dag 1-3 útisigur á Bournemouth á Vitality vellinum. Leikurinn var liður í 3. umferð ensku úrvasldeildarinnar.

Manchester City komst í 0-2 með mörkum frá Sergio Aguero og Raheem Sterling. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks minnkaði svo Harry Wilson muninn úr stórbrotinni aukaspyrnu.

Sergio Aguero gerði svo útum leikinn um miðjan seinni hálfleik. 90min.com tók saman einkunnir leikmanna og velur David Silva, fyrirliða Manchester City í leiknum, mann leiksins. Silva lék í dag sinn 400. leik fyrir City liðið. Silva lagði upp seinni tvö mörk City í leiknum.

Kyle Walker þótti standa sig frekar illa í leiknum og fékk 5 í einkunn. Hjá Bournemouth var varamaðurinn og markaskorarinn, Harry Wilson, valinn bestur.

EInkunnir 90min.com

Byrjunarlið Bournemouth: Ramsdale (6); Smith (5), Mepham (7), Cook (6), Ake (6), Daniels (5); King (6), Lerma (6), Billing (6), Fraser (5); Wilson (6)

Varamenn: Wilson (8*), Ibe (6), Solanke (5)

Byrjunarlið City: Ederson (8); Walker (5), Otamendi (7), Laporte (7), Zinchenko (7); D.Silva (9*), Gundogan (7), De Bruyne (8); Sterling (8), Aguero (8), B.Silva (7)

Varamenn: Rodri (7), Mahrez (7)
Athugasemdir
banner
banner