Fotbolti.net
25.08.26 - 16:46
Innkastið

„Eins og að horfa á Lengjubikarsleik í janúar“

Stjarnan fékk undan

Stjarnan fékk undan

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og Þór mættust í Miðgarði í Bestu deildinni á sunnudag þar sem Stjarnan fór með sigur af hólmi.

Spilað var í Miðgarði þar sem framkvæmdir eru á Samsungvellinum í Garðabæ en verið er að skipta um gervigras á vellinum, og því völlurinn ekki leikfær.

Valur Gunnarsson furðaði sig á því hvers vegna það væri spilað í Miðgarði í Innkastinu í gær.
Tveir leikir í Bestu spilaðir í Miðgarði? - „Lítum ekki á það sem ákjósanlega lausn"
TENGT EFNI

Tveir leikir í Bestu spilaðir í Miðgarði? - „Lítum ekki á það sem ákjósanlega lausn"

„Ég skil ekki hvers vegna þessi leikur er ekki spilaður á Fylkisvelli eða á Þróttaravelli. Ekki nóg með að vera í Miðgarði heldur þá var myndavélin í útsendingu Sýnar á jarðhæð. Þetta var eins og að horfa á Lengjubikarsleik í janúar,“ sagði Valur og hélt áfram.

„Mér finnst stórskrýtið að það megi spila þarna inni. Að mér skylst er þessi völlur ekki leyfilegur, höllin er ekki nægilega há. Við verðum að hafa standard hérna og ekki spila inni,“ sagði Valur að lokum.

Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.