25.08.26 - 14:51
Elvar Geir Magnússon
Savinho breytir nafninu eftir skiptin og er nú Savio

Savinho er orðinn Savio. Kemur til dyranna eins og hann er klæddur.

Mynd: Tottenham

Savinho er orðinn Savio. Kemur til dyranna eins og hann er klæddur.

Mynd: Tottenham
„Við óskum þér alls hins besta, Savinho," skrifaði Manchester City á samfélagsmiðla. - „Velkominn til Tottenham, Savio," tilkynnti Tottenham.
Þessi 22 ára brasilíski kantmaður hefur verið keyptur til Tottenham og nýr kafli hefst með nýju nafni. Eða í raun hans raunverulega nafni.
Hann heitir fullu nafni Savio Moreira de Oliveira en hefur notast við gælunafnið Savinho aftan á treyjunni.

TENGT EFNI
Savinho til Tottenham (Staðfest)
Nú hefur hann hinsvegar ákveðið að nota sitt raunverulega nafn og verður númer 17 með nafninu Savio aftan á treyjunni á Tottenham.

Mynd: Tottenham