25.08.26 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sá leikjahæsti í hópnum framlengir við ÍA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steinar Þorsteinsson hefur framlengt samning sinn við ÍA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028. Fyrri samningur hefði runnið út eftir yfirstandandi tímabil.
Í tilkynningu ÍA kemur fram að Steinar sé sá leikjahæsti af núverandi leikmönnum ÍA, en hann hefur leikið 324 leiki fyrir ÍA og skorað í þeim 66 mörk.
Steinar er 28 ára miðjumaður sem getur einnig spilað á kantinum. Hann hefur komið við sögu í ellefu leikjum í Bestu deildinni og byrjað sex þeirra. Hann hefur skorað eitt mark í sumar, eina mark ÍA gegn Blikum í júlí.

„Á undanförnum árum hefur hann skipað sér sess sem einn af lykilmönnum liðsins og verið mikilvægur hlekkur í félaginu innan sem utan vallar. Það er okkur sönn ánægja að tilkynna um áframhaldandi samning við Steinar og við hlökkum til næstu ára með honum í gulu og svörtu," segir í tilkynningu ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð