Fotbolti.net
25.08.26 - 09:51
Innkastið

„Enginn sem þeir sakna meira en Elías“

Sleit krossband í byrjun júlí.

Sleit krossband í byrjun júlí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er að koma í ljós að með öll þessi stóru meiðsli og veikindi Víkinga. Það er enginn sem þeir sakna meira en Elías Már Ómarsson,“ sagði Tómas Þór Þórðarson, stuðningsmaður Víkings, í Innkastinu í gær.

Elías sleit krossband í byrjun síðasta mánaðar. Hann hafði farið frábærlega af stað með Víkingi og skoraði hann tólf mörk í Bestu deildinni fyrir meiðslin.
Elías Már með slitið krossband
TENGT EFNI

Elías Már með slitið krossband

Það eru stór skörð höggvin í lið Víkings; Ingvar Jónsson greindist með krabbamein snemma tímabils og verður því ekki meira með.

Þeir Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic verða þá að öllum líkindum ekki með það sem eftir lifir tímabils eftir að hafa meiðst í Evrópuleik liðsins gegn Hapoel Be'er Sheva í upphafi mánaðar.

Tómas Þór segir Víking sárvanta mann eins og Elías til þess að leiða línuna. „Víkingur er minnst klíníska besta fótboltalið sem ég hef nokkurn tímann séð. Auðvitað eru leikmenn sem maður ætlast til að gera betur í þessum stöðum. En það vantar þennan mann sem var að ógna markametinu, ásamt Aroni Sig, áður en hann meiddist,“ sagði Tómas.
Óskar ökklabrotnaði í Evrópuleik gegn Hapoel.

Óskar ökklabrotnaði í Evrópuleik gegn Hapoel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hnéskelin á Tarik fór úr lið og hann verður frá í 9-12 mánuði.

Hnéskelin á Tarik fór úr lið og hann verður frá í 9-12 mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.