Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 25. september 2021 13:20
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Fylkis og Vals: Sveinn í markinu - Kveðjuleikur Helga
Helgi Valur hættir eftir tímabilið
Helgi Valur hættir eftir tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir og Valur mætast í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla í dag en leikurinn hefst klukkan 16:00.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  6 Valur

Það er ekkert undir í þessum leik nema gamla góða stoltið. Heimir Guðjónsson gerir þrjár breytingar á liði Vals. Sveinn Sigurður Jóhannesson kemur í markið fyrir Hannes Þór Halldórsson og þá koma þeir Almarr Ormarsson og Guðmundur Andri Tryggvason inn í liðið.

Það eru þá þrjár breytingar hjá Fylki. Helgi Valur Danielsson spilar síðasta leik sinn í Fylkisbúningnum. Malthe Rasmussen og Birkir Eyþórsson koma einnig inn í liðið.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
10. Orri Hrafn Kjartansson
17. Birkir Eyþórsson
21. Malthe Rasmussen
22. Dagur Dan Þórhallsson
28. Helgi Valur Daníelsson

Byrjunarlið Vals:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
8. Arnór Smárason
9. Patrick Pedersen
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
13. Rasmus Christiansen (f)
14. Guðmundur Andri Tryggvason
20. Orri Sigurður Ómarsson
33. Almarr Ormarsson
Athugasemdir
banner
banner