Íslenska kvennalandsliðið mætir Japan í vináttuleik í Almere í Hollandi klukkan 18:40 í dag.
Leikurinn fer fram á Yanmar-leikvanginum í Almere en Japan er með eitt sterkasta landslið heims. Liðið vann meðal annars HM árið 2011.
Þá komst liðið í 16-liða úrslit á síðasta heimsmeistaramóti og var í undanúrslitum árið 2015.
Íslenska liðið notar þennan leik sem undirbúning fyrir undankeppni HM og EM sem fer fram á næsta ári.
Leikur dagsins:
18:40 Japan-Ísland (Yanmar Stadium)
Athugasemdir