Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. janúar 2020 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar um Moses: Vitum af honum, fínt að fá hann til reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrr í janúar var sagt frá því að Víkingur væri með framherja á reynslu.

Moses er frá Sierra Leone en hann hefur undanfarin fimm ár leikið í dönsku B-deildinni með Vendsyssel og Viborg.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings í Reykjavík, var spurður út í Moses í viðtali eftir leik gegn Fram.

„Hann kom til reynslu og spilaði með okkur gegn Kórdrengjum," sagði Arnar.

„Augljóslega kann hann fótbolta, hann spilaði með þokkalegu liði í Danmörku. En að svo stöddu þá höldum við leitinni áfram. Við vitum af honum, það var fínt að fá hann til reynslu.

„Við gátum kynnst honum og hann kynnst okkur. Það gerir þetta auðveldara ef áhugi okkar eykst í framtíðinni,"
sagði Arnar við Fótbolta.net.

Sjá einnig:

Arnar Gunnlaugs: Atli Hrafn hefði mátt vanda sig aðeins betur

Arnar Gunnlaugs: Atli Hrafn hefði mátt vanda sig aðeins betur
Athugasemdir
banner
banner