Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. janúar 2021 18:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tuchel tekur við Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Þjóðverjinn Thomas Tuchel hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Chelsea. Hann tekur við starfinu af Frank Lampard sem var rekinn í gær, mánudag.

Tuchel verður fyrsti Þjóðverjinn sem stýrir Chelsea. Hann skrifar undir 18 mánaða samning við Chelsea.

Hinn 47 ára gamli Tuchel var rekinn frá PSG síðastliðinn aðfangadag. Tuchel, sem fór með PSG í úrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili, tók við frönsku meisturunum 2017 eftir að hafa áður stýrt Mainz og Borussia Dortmund í Þýskalandi.

Lampard var stjóri Chelsea í 18 mánuði. Hann náði í 1,67 stig að meðaltali í leik sem er það fjórða minnsta sem fastráðinn stjóri Chelsea hefur fengið í úrvalsdeildinni. Síðan Abramovich eignaðist félagið hefur bara Andre Villas-Boas (47,5%) verra sigurhlutfall í öllum keppnum en Lampard (52.4%).

Chelsea er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 29 stig eftir 19 leiki.

Tuchel mun stýra sinni fyrstu æfingu í kvöld og fer beint á hliðarlínuna á morgun þegar Chelsea mætir Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner