James Bree, leikmaður Luton Town, mun ganga í raðir Southampton á næstu dögum.
Bree, sem er 25 ára gamall, verður samningslaus í sumar og var því falur fyrir lágt verð.
Southampton greiðir um það bil 750 þúsund pund fyrir þjónustu hans.
Englendingurinn fer í læknisskoðun hjá Southampton í dag áður en hann skrifar undir langtímasamning.
Nathan Jones, stjóri Southampton, þekkir vel til Bree enda þjálfaði hann leikmanninn hjá Luton í þessi tvö ár sem hann stýrði liðinu.
Athugasemdir