„Þetta er munurinn þessum klúbbum, þeir drekka Daiquiri og Caipirinhas (kokteilar) en hér drekkum við alvöru bjór!“ sagði Daniel Farke, stjóri Leeds, sem var spurður út í ummæli sem Pep Guardiola lét falla á dögunum.
Hann var þar að tala um ummæli Guardiola eftir síðasta deildarleik þar sem Spánverjinn ákvað að gefa leikmönnum þriggja daga frí og talaði um að þeir gætu fengið sér kokteil í fríinu.
Farke hrósaði einnig Pep sem hann sagði einn besta stjóra sögunnar.
„Pep er alltaf að þróa stíl sinn og er alltaf á undan kúrfunni. Um leið og önnur lið aðlagast þá breytir hann um kerfi. Hann mótaði og veitti leiknum innblástur. Hann er einfaldlega sá besti og er líklega með besta framherja heims í Erling Haaland og veit hvernig hann á að nota hann. Sá eini sem kemst næst honum er auðvitað Dominic Calvert-Lewin. Við verðum að sjá til þess að Haaland komi sér ekki fyrir í fullkomna stöðu til þess að hann geti nýtt hæfileika sína, en það eru svo aðrir sem geta skorað mörg mörk, ekki bara Haaland.“
„Við erum með öll gögn og getum fundið veikleika, jafnvel hjá Man City. Við sjáum bara sigur eftir sigur á töflunni og þeir eru í toppformi. Haaland er með 22 mörk og Semenyo með 13 mörk, en guð sé lof að við getum fundið veikleika hjá þeim,“ sagði Farke.
Liðin eigast við á laugardag og á Man City möguleika á því að saxa forystu Arsenal niður í tvö stig takist liðinu að ná í sigur.
Athugasemdir



