Fótbolti.net fjallaði um það á mánudag að Valur hefði boðið í Kristófer Inga Kristinsson sem er leikmaður Breiðabliks.
Í Dr. Football þætti dagsins segir Albert Brynjar Ingason frá því að Valur hefði boðið Breiðabliki að fá Adam Ægi Pálsson á móti.
„Valur bauð í Kristófer Inga og þeir buðu leikmann í skiptum, Adam Ægi Pálsson. Það kemur mér mjög á óvart því hann hefur ekki fengið þau skilaboð frá Val að þeir séu að reyna losa hann. Hann heldur frekar að hann sé í hlutverki þarna, smá skrítin vinnubrögð," segir Albert sem er frændi Adams.
Adam var hjá Breiðabliki í yngri flokkum á árunum 2013-16. Adam er fæddur 1998 og Kristófer 1999.

Því var velt upp í þættinum hvort þetta yrðu góð skipti fyrir bæði Val og Breiðablik.
„Nei, mér finnst það ekki 'win-win' fyrir báða. Valsarar hafa ekki efni á því, þurfa leikmenn inn, ekki út í staðinn; þurfa meiri breidd. Patrick Pedersen er meiddur og ætlaru þá að veðja á annan meiðslagjarnan framherja (Kristófer Inga) til að leiða framlínuna? Ég er mjög hrifinn af Kristófer Inga en hann hefur ekki haldist heill hingað til. Það eru leikmenn farnir Aron Jó, Lundemo, Sigurður Egill fóru í vetur og bæði Tómas Bent og Orri Hrafn fóru í glugganum í fyrra, og lítið komið inn í staðinn," segir Albert.
Okkar Welbeck?
Hjörvar Hafliðason velti fyrir sér hvort Kristófer gæti orðið „okkar" Danny Welbeck. Welbeck þótti mjög efnilegur hjá Manchester United en hefur þótt spila best hjá Brighton á seinni stigum ferilsins.
„Maður sér glefsur hér og þar og svo allt í einu þegar hann verður fullorðinn þá getur hann farið að hanga heill og verið drullugóður."
Tölfræðin í fyrra
Kristófer skoraði fimm mörk í tíu byrjunarliðsleikjum með Breiðabliki á síðasta ári og kom hann inn á tíu sinnum til viðbótar. Hann er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur á ferlinum spilað með Willem II, varaliði PSV, Grenoble, SönderjyskE, VVV-Venlo. Hann lék á sínum tíma 33 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði tvö mörk.
Adam skoraði eitt mark og lagði upp tvö í sjö byrjunarliðsleikjum á síðasta tímabili. Hann hefur spilað með Keflavík, Víkingi, Val, Novara og Perugia í meistaraflokki. 2023 skoraði hann níu mörk og lagði upp fimm í 26 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Val og 2022 lék hann frábærlega með Keflavík.
Athugasemdir