Fotbolti.net
26.03.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Emil Páls í Fjölni (Staðfest)

Emil Páls í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur fengið Emil Pálsson í sínar raðir á lánssamningi frá FH en hann skrifaði undir í gærkvöldi.
,,Ég var að skoða mín mál og ákvað að það væri rétt skref á mínum ferli að prófa að fara í lið þar sem ég fæ stærra hlutverk,\" sagði Emil við gullinbru.is eftir að hann skrifaði undir.

,,Ég hef alltaf barist fyrir sæti mínu hjá FH og var tilbúinn í þá samkeppni en mér fannst þetta vera rétt skref núna.\"

Emil er fæddur árið 1993 en hann getur spilað allar stöður framarlega á vellinum. Emil kom til FH frá BÍ/Bolungarvík fyrir sumarið 2011 en hann hefur skorað sjö mörk í 65 leikjum í Pepsi-deildinni á ferli sínum.

Fjölnismenn fara í æfingaferð um helgina en Emil er nýkominn heim úr æfingaferð með FH. ,,Ég fór með FH til að fá smá base tan og núna er ég klár á bakkann með Fjölni um helgina,\" sagði Emil léttur í bragði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.