Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 23:45
Elvar Geir Magnússon
Toronto
„Við ferðuðumst saman og erum mjög nánir“
Eimskip
Orri Steinn í rútuferð í Toronto.
Orri Steinn í rútuferð í Toronto.
Mynd: KSÍ
Vegna meiðslavandræða er komið heilt ár síðan landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson lék síðast í treyju Íslands. Orri er hinsvegar kominn í gang að nýju og í hópnum sem er að fara að mæta Kanada og Haíti í vináttulandsleikjum.

Hákon Arnar Haraldsson er varafyrirliði Íslands og hefur borið bandið í fjarveru Orra. Hákon spjallaði við Fótbolta.net á liðshótelinu í Toronto og fékk spurninguna: Hvernig er að endurheimta Orra inn í hópinn?

„Það er geggjað, það var kominn tími til að fá hann aftur. Hann hefur verið ógeðslega óheppinn með meiðsli. Ég er mjög glaður að fá hann aftur, við ferðuðumst saman og erum mjög nánir. Það er mikið ánægjuefni að fá hann til baka," segir Hákon.

Orra var saknað í undankeppninni fyrir HM þar sem hann gat ekkert tekið þátt.

„Hann gefur okkur helling. Hann er frábær leikmaður og frábær innan sem utan vallar. Það var mikill missir að hafa hann ekki."

Orri, sem er 21 árs sóknarmaður, hefur skorað fjögur mörk í tólf leikjum fyrir Real Sociedad í La Liga á tímabilinu.

Viðtalið við Hákon í heild sinni:
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
Slapp
Athugasemdir
banner
banner