„Við vorum mjög nálægt þessu, fengum fullt af færum sem við myndum venjulega klára en við gerðum það ekki í dag. Þetta mót hefur ekki alveg dottið með okkur, þessi fyrsti leikur var auðvitað fínn en eins og Nígeríu leikurinn spilaðist ekki nógu vel og þessi leikur ekki heldur þannig að það vantaði herslumuninn uppá þetta.“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-1 tap gegn Króatíu í síðasta leik Íslands á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í kvöld.
Jóhann talaði um að færanýtingin á mótinu hafi fellt strákanna að einhverju leyti, liðið skoraði aðeins tvö mörk í þremur leikjum en Jói sagði að liðið gengi þrátt fyrir það mjög stoltir frá þessu fyrsta Heimsmeistaramóti í sögu Íslenska landsliðsins í fótbolta.
„Það er auðvitað aðalatriðið sem fellir okkur á þessu móti, að skora ekki nógu mikið af mörkum og sérstaklega í dag hefðum við átt klárlega átt að skora fleiri mörk."
„Þeir fá auðvitað færi þegar við opnum okkur og erum að reyna að sækja, það var skalli í slá og fullt í gangi en við töluðum um það fyrir leik að gefa allt í þetta og við gerðum það. Við förum stoltir frá borði héðan en að sama skapi vorum við gríðarlega nálægt þessu sem er svekkjandi. Svona er þetta, það hefur gengið mikið upp hjá okkur síðustu ár og við höfum spilað gríðarlega vel, það sem hefði dottið með okkur fyrir nokkrum árum var ekki að detta með okkur í dag. Að sama skapi eins og ég sagði áðan förum við stoltir frá þessu móti þó það sé gríðarlega svekkjandi að Argentína vann 2-1 og okkur hefði dugað 2-1 til að komast áfram."
„Það er mjög svekkjandi, það er erfitt að tala um þetta núna og ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, við skorum ekki nógu mörg mörk og við fengum samt færin og allt það.“
Athugasemdir