mið 26. júní 2019 09:55
Elvar Geir Magnússon
Tottenham að tryggja sér Ndombele - Man Utd vill Ben Yedder
Powerade
Tanguy Ndombele (til vinstri).
Tanguy Ndombele (til vinstri).
Mynd: Getty Images
Wissam Ben Yedder.
Wissam Ben Yedder.
Mynd: Getty Images
Ndombele, Ben Yedder, Origi, Griezmann og fleiri sem koma við sögu í slúðurpakka dagsins. BBC tók saman að vanda.

Tottenham er komið langt með að tryggja sér franska miðjumanninn Tanguy Ndombele (22) frá Lyon fyrir metfé hjá félaginu, 60 milljónir punda. Ndombele lék 34 leiki á síðasta tímabili þegar Lyon tryggði sér Meistaradeildarsæti með því að enda í þriðja sæti í Ligue 1. (Sun)

Tottenham er einnig nálægt því að tryggja sér enska vængmanninn Jack Clarke (18) frá Leeds United. Clarke lék 22 leiki í Championship-deildinni á síðasta tímabili. (Sky Sports)

Tottenham berst við Arsenal um franska U19 landsliðsmanninn William Saliba (18) hjá Saint-Etienne. 27 milljóna punda tilboði frá Arsenal í varnarmanninn var hafnað. (Mirror)

Spænski sóknarmaðurinn Ayoze Perez er einn af mörgum leikmönnum Newcastle sem íhuga sína framtíð hjá félaginu eftir að Rafael Benítez fór. (Sun)

Paris St-Germain gæti verið tilbúið að selja Neymar (27) ef félagið fær meira en þær 200 milljónir punda sem það eyddi í að kaupa hann frá Barcelona. (Telegraph)

Manchester City hefur átt í viðræðum við íþróttastjóra Juventus, Fabio Paratici, um möguleg 44 milljóna punda kaup á portúgalska bakverðinum Joao Cancelo (25). (TuttoMercatoWeb)

Manchester United vill fá framherjann Wissam Ben Yedder (28) frá Sevilla og mun virkja 36 milljóna punda riftunarákvæði í samningi Frakkans. (ABC)

United hefur einnig áhuga á franska framherjanum Mathis Rayan Cherki (15) sem spilar fyrir Lyon. Real Madrid, Juventus, Barcelona og Bayern München hafa sýnt honum áhuga. (Telegraph)

Crystal Palace vill fá belgíska markvörðinn Simon Mignolet (31) frá Liverpool. Ernirnir eru tilbúnir að borga 8 milljónir punda fyrir varamarkvörð Liverpool. (Evening Standard)

Liverpool vill ekki selja Mignolet og mun aðeins íhuga að láta hann fara ef tilboðið er ásættanlegt. (ESPN)

Real Betis vill fá Divock Origi (24), framherja Liverpool, sem skoraði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Tottenham í júní. Spænska félagið undirbýr 10 milljóna punda tilboð í belgíska landsliðsmanninn. (Bein Sports)

West Ham vill fá úrúgvæska sóknarmanninn Maxi Gomez (22) frá Celta Vigo. (Evening Standard)

Leicester hefur unnið 8 milljón punda kapphlaup um enska varnarmanninn James Justin (21) hjá Luton. Leicester lagði Aston Villa og Celtic í samkeppni um leikmanninn. (Mirror)

Gianluigi Buffon (41) er í viðræðum við Juventus um að snúa aftur til félagsins. Markvörðurinn ræðir um eins árs leikmannasamning með það fyrir augum að taka svo að sér starf hjá félaginu. (Sky Italia)

Barcelona færist nær því að tryggja sér Antoine Griezmann (28) frá Atletico Madrid. 107 milljóna punda riftunarákvæði í samningi Griezmann verður virkt þann 1. júlí. (Telegraph)

Napoli íhugar að taka hið goðsagnakennda númer 10 aftur upp til að reyna að fá James Rodriguez. Númerið var lagt á hilluna til heiðurs Diego Maradona. (Mail)

Danny Cowley, stjóri Lincoln, og Darren Moore, stjóri West Brom, eru taldir líklegastir til að taka við Derby ef Frank Lampard fer til Chelsea. (Derby Telegraph)

Gambíumaðurinn Mo Barrow (26) hjá Reading er á óskalistum fjögurra Ligue 1 félaga, þar á meðal Montpellier og Rennes. Tyrknes félög vilja einnig fá framherjann en hann vill yfirgefa Reading eftir tvö ár þar. (getreading)
Athugasemdir
banner
banner